Emstrur
Vefsíðufyrirtækið Emstrur var stofnað árið 2005 og hefur síðan þá sett upp vefsíður fyrir margs konar fyrirtæki, félagasamtök, listamenn, hönnuði, lækna, innflutningsfyrirtæki, sérfræðinga, ferðaþjónustufyrirtæki, félög, fasteignafélög, verðbréfafyrirtæki, framleiðslufyrirtæki, fasteignasölur, verslanir, verktaka, samstarfsverkefni, laxveiðiá, tónlistarmenn, skóla og söfn svo dæmi séu nefnd. Emstrur er netfyrirtæki og starfar sem slíkt.
Áhersla á vandaða kóðun
Emstrur er vefsíðufyrirtæki sem leggur áherslu á athyglisverða hönnun, rétta HTML kóðun og CSS stýringu í samræmi við alþjóðlega staðla og reglur. Enda eru þetta lykilatriði þegar kemur að gengi og möguleikum sérhverrar vefsíðu gagnvart leitarvélum. Ef hönnun og uppsetning er ekki í lagi á vefsíðan litla möguleika á netinu og leitrvélar vilja lítið við hana kannast.
Vefsíðugerð og Drupal
Til þess að breikka möguleika viðskiptavina okkar bjóða Emstrur núna vefsíður sem eru settar upp í Drupal frjálsa hugbúnaðinum með öflugu vefumsjónarkerfi. Hér fara saman vönduð kóðun, miklir möguleikar, uppsetning fyrir leitarvélar, ókeypis vefumsjónarkerfi og kraftmiklar vefsíður. Emstrur og Drupal vinna saman að heildstæðri lausn fyrir þig og þínar þarfir.
Innri vefur
Verslunarvefur
Atburðadagatal
Rafræn form
Myndaalbúm
Fréttakerfi
Auglýsingar
Félagatal
Fréttabréf
Gestabók
Video og myndbönd
Hljóð og tónlist
Skjalavistun
Bloggkerfi


































































