Shopify Vefsíðugerð
Shopify netverslun
Shopify er ört vaxandi netverslunarkerfi sem býður upp á helstu möguleika sem til þarf að opna & reka netta netverslun. Á heimsvísu er Shopify fjórða vinsælasta netverslunarkerfið í heiminum með um 10% hlutdeild af þeim markaði en aftur á móti að þá eru þeir stærstir ef Bandaríski markaðurinn er skoðaðu en þar eru þeir með um 28% markaðshlutdeild.
Shopify netverslunarkerfið er byggt upp með það að markmiði að það sé einfalt í notkun og virki án mikillar tækniþekkingar en kerfið hentar þeim illa sem vilja geta breytt miklu eða haft allt eftir sínu höfði
Vefhönnun og útlit
Shopify markaðstorgið býður upp á mikið af faglegum og flottum útlitum sem hægt er að kaupa en það er einnig hægt að sérhanna útlit í Shopify. Við getum aðstoðað með að finna hið fullkomna útlit eða einfaldlega sérhannað það fyrir þig.
Skalanleg útlit
Allt sem vefsíðuhönnun.is hannar eru útlit sem eru skalanleg þannig að þau virka á öllum tölvum, spjaldtölvum og farsímum. Í dag eru heimsónir á minni tækjum alltaf að aukast og því mikilvægt að huga vel að þessum hluta.